13ágúst
Illa spældur
Núna rétt í þessu var ég að skoða fréttir, klám og sitthvað fleira sem internetið hefur upp á að bjóða. og heh, ég rak augun í einhverja frétt sem fjallaði um eitthvað tilboð sem barst í einhvern suðurstrandar vegkafla, sem liggur einhvers staðar á íslandi. Anyhey, ég fór að hlægja þegar ég las eftirfarandi kafla. hehemm:"KHN ehffrá Ísafirði átti lægsta boð í Suðurstrandarvegkaflann á milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar, en tilboðið hljóðaði upp á 697 milljónir króna. Þetta kemur fram í fret Vegagerðarinnar..."
Fret Vegagerðarinnar. LOL. annars þá skil ég ekki alveg um hvað er verið að tala um, svona í heildina litið, í þessari frétt. Eitthvað um prósentur og því um líkt. Lesa frétt.
annars þá er ég að fara suður á boginn næstkomandi laugardag, rakaður undir höndunum og á bringunni, þ.e.a.s. í kringum geirvörturnar. Svo á ég líka eftir að setja inn ferðablogg um interrailið okkar hákons. ég er kominn með byrjun og endi, sem er samanlagt um 5 blaðsíður í word. vantar núna bara meginmálið. það kemur seinna, líkt og allt annað í þessari blessaðri veröld.
orðið hyperlink er frekar fáránlegt, þegar pælt er akademískri og óeiginlegri merkingu þess.
