12desember
Dagur 20:
Gleði út í gegn. Í gær sá ég lítinn hund í aftursæti bíls. Hann var í hvítri hettupeysu og mér var skemmt. Ég hló við og brosti, svo fór ég að velta fyrir mér hvað það er sem fær mann til að gleðjast. Af hverju einum manni finnst eitthvað broslegt en hinum ekki. Og hvernig gamansemd breytist með árunum. Þegar maður var yngri (í gamla daga) þurfti ekki mikið meira en samvaxinn mandarínubát til að halda manni kátum í svo og svo heilan dag. Núna er þetta öðruvísi. Ekki endilega verra, bara öðruvísi.
Sei sei og hvern hefði grunað að mjaðmasveifla morgundagsins (í gær, vertu ekki svona glær) hefði minnt svona mikið á tilvist skiljanlegra stærðfræðikennara? Annars er það að frétta af þeim að þeir eru útdauðir.
Myndin hefur verið fjarlægð vegna tækniörðugleika. (ég kann ekki á þetta drasl)




skoðið myndina, ef hún virkar ekki þá á bara að smella á hana, ef þú vilt sjá hana
Hákon var hress um helgina
Þið ráðið ferðinni. Tjáið ykkur.
07desember
Ástæðan fyrir titli á enskri tungu er auðvelt að útskýra. Mig langaði til að segja þetta og það var einungis hægt að segja þetta á ensku og ég ræð.
Annars á ég ekkert að vera að tala ensku. Því það er enska sem er að poisoning our tungumál. Og Vestur-Íslendingarnir sömuleiðis. Vestur-Íslendingar eru með fátæklegan orðaforða, kunna ekki að finna sagnfyllingu í setningu og, já ég leyfi mér að segja það, asnalegar talvenjur. En við getum nú ekki áfellst þá fyrir þetta kæruleysi. Ætli þeir skilja nokkuð á íslenska. Máské kunna þeir bara eitt og eitt sáraeinfalt orð eða eru þeir kannski í þykjustuleik og skila í raun og veru helling. Nei nei, þeir eru alveg takmarkaðir. En af hverju er þetta ekki öfugt? Þannig að þeir kunna flóknu orðin en ekki þau einföldu. Þá væri ekki jafn mikið kaos fyrir þá að tala, heldur myndu orðin einfaldlega leka út úr þeim, fallega þó. Með því móti gæti Vestur-Íslendingur labbað upp að alvöru-Íslending (sem er erfitt að skilgreina í þessu fjölþjóðasamfélagi sem við lifum í dag, but what can you do?) og hughreyst hann ef hann væri grátandi og sagt skýrt og greinilega: Don´t you worry pal, ótímabært sáðlát takes care of it self. Og engan myndi saka. Allir glaðir.
Enska+íslenska er reyndar ekkert svo slæmt, bara eðlileg þróun tungumáls en þó má ekki gleyma sér. So I say upon you people: Vandið málfar ykkar. Axlið ábyrgð.
Dagur 19:
Smá áróður í gangi á degi nítján. Látið það bara sem vind um eyru þjóta, ekki taka mark á honum. Hann er nefnilega schizo. Hey, ekki tala ensku. Segðu frekar: Hann er geðklofinn. Ok?
Mér finnst allir vera að tala eitthvað um jólin og jólaskap og þess háttar. En ég ætla nú ekki að fara að hella mér útí að fara að tala um jólin eins og enginn sé morgundagurinn. Ó nei, aldeilis ekki. Ég ætla heldur ekki að tala um ilminn sem fyllir húsið á aðfangadag, né heldur góða matinn sem á eftir fylgir. Gómsætan hamborgarahrygg með öllu besta meðlæti sem mannvera getur ímyndað sér. Ískalt og freyðandi jólaölið sem stendur á borðinu í stórri og fallegri kristalkönnu. Kertaljósin sem flökta í takt við jólaskapið og vel skreytt jólatréið starir á mann. Allir pakkarnir glansandi undir tréinu og bíða í eftirvæntingu eftir að vera opnaðnir. Fjölskyldan sameinast við matarborðið með bros á vör. Hamingjan smitast manna á milli og rólyndisleg snjókornin lenda varlega á glugganum og bráðna. Hah, nei ég ætla ekki einu sinni að minnast á neitt af þessu. Ekki neitt. Né ætla ég að minnast á öll jólalögin sem koma manni upp í hæstu hæðir. Lög á borð við: Ég kemst í hátíðarskap, Nei, nei ekki um jólin, Ég vild´ að alla daga væru jól og Heims um ból.
Ohh, ég er einmana. Jól! ég sakna þín. Eða hlakka til, ég man ekki alveg.
Og talandi um jólin og kraftaverk. Þá mæli ég með að allir tékki á þessu. Þetta saga af manni sem var fastur á eyju í Kyrrahafinu og sendi flöskuskeyti með lengdargráðunum af staðnum sem hann var fastur á og bað um að sér yrði komið og bjargað. Átakanlegt dæmi. www.bottleguy.com
Slúttum þessu núna með viðeigandi kveðju. Í sameiningu. Ready?
Ég hef verið bólusettur fyrir lofthræðslu og því er ég farinn aftur að bjarga málunum. Kraftarnir eru einnig komnir aftur og nú er ekkert mál að tyggja gaddavír.
Clark Kent.
Enei þetta er bara ég. Gamli graði.
01desember
TIL HAMINGJU. ÞÚ ERT GESTUR NÚMER 10.000.000. O HOW SWEET. Click here to claim.
Neidjók. verðlaunin eru nýr og glæsilegur butt-plug pakki. Sendist í pósti.
Dagur 18:
Lukkulegt andartak
Ég var áðan að slappa af fyrir fram “the telly”, svo ég sletti, og þá birtist auglýsing þar sem verið var að auglýsa nýja geislaplötu með Selmu Björns og Hönsu (Selma Björns og Hansa). Þar syngja þær einhver döpur lög í bland við leiðinleg lög. En í lokin kom setning sem vakti mikla lukku: Plata eftir konur, fyrir konur. Jahá, talandi um misrétti, vi-nur-inn. Ef karlmaður myndi senda eitthvað svona frá sér yrði hann grýttur. Djís, ég meina það.
Og ég er ekki búinn. Önnur auglýsing með konu í aðalhlutverki: Húsasmiðjan, þetta er ekkert mál. (klapp, klapp). Hvað meinar hún eiginlega? Að það sökki að vera karlmaður og við eigum bara að drepast. Kræst. Mér býður við svona pakki.
Hvert er ykkar álit, feministar heimsins? Ég ákalla ykkur og órökuðu leggi yðar. Sýnið ykkur! eða látið lítið fyrir ykkur fara næstu aldir, líkt og þið hafið gert síðustu árþúsundin.
Rólegur
Annars er ég bara rólegur. Kannski frekar heitt í hamsi eins og er, og því pungrauður á öllum líkamanum. Svo er árshátiðin í sjónmáli sem og eilífðin. Ég er búinn að undirbúa mig fyrir hvort tveggja.
Jafnframt hef ég komist að því hver þáttaskilin í lífi mínu eru: Ég er kynhverfur. Laðast hvorki að konum, dýrum né körlum. Kynhverfur. Í tilefni af því ætla ég að koma fram á Glerártorgi milli klukkan tíu og tólf á laugardaginn og gefa eiginhandaráritanir. Pylsur og kókómjólk fyrir börnin.
Eitt að lokum. Könnunin leiddi ýmislegt fróðlegt í ljós. Meðal annars að 90% landsmanna eru með botnlanga. Einnig leiddi hún í ljós að um 10% eru búnir að láta fjarlæga á sér botnlangann.
Engin lokaorð að þessu sinni
26nóvember
Nú held ég að búlemíu sjúklingar séu bara að biðja um athygli, svona pínu svona eins og kínverjar sem borða hrísgrjón með prjónum.
Show off.
Dagur 17:
What´s the delio
Merkilegt er að ef einhver segir þér frá einhverju merkilegu, eins og að það séu milljón billjón sandkorn í heiminum en samt eru til fleiri stjörnur út í geimnum, þá trúir maður þeim alveg og pælir kannski ekkert meira í því. En ef einhver segir manni að eitthvað sé nýmálað eða að eitthvað sé bullusjóðanditussuheitt þá verður maður að tékka á því. Það endar svo með því að maður verður með málningu á nefi og kinnum eða 1. stigs brunasár á líkamanum. Tja eða, í versta falli, lamaður og heyrnalaus.
Mig langar að vefja svona pælingum upp í jónu og reykja þær. Reykingar drepa og ég reyki ekki. En drep ég, því ég reyki ekki? Hvað með þá sem reykja? (ekki óbeinar reykingar samt, það eru allir orðnir fullsaddir af þeim)
Já á meðan ég man. Ég er kominn inn í nýjan kafla nafla í lífi mínu. Það eru svokölluð þáttaskil sem eiga sér stað. Hef ekki enn áttað mig á þeim sjálfur en vonandi sem fyrst.
Sósur og olíur
Tómatsósa er búin til úr tómötum, sojasósa búin til úr sojafólki, hvítlauksolía búin til úr kreistum/möluðum/nöguðum/föðmuðum (pakkið sem lyktar illa illa, held ég að vinni við að faðma hvítlauksblöð þangað til að það kemur olía úr þeim)/söxuðum hvítlauk. En er þá smjörolía búin til úr smjöri? Hvað með smurolíu? Ha? Ha? What? Ha? Og baby olía? Ha? What?
Viðbót: Eins og glöggt auga sér (Gestur, okkur er alveg sama) er ég búinn að bæta við fólki í tenglana. Ef svo vill til að einhver sé þar sem vill ei vera þar eða einhver sem vill vera þar en er þar ekki, þá hef ég sambönd og get reddan því sem redda þarf. Æji já, svona er ég bara, með sambönd alls staðar.
Jæja jæja I´m off. Ég er orðinn of seinn í árlegu kviðarholsspegluna mína. Næstum því
eins og stólpípa en ekki alveg jafn kitlin.
Jæja jæja I´m off. Ég er orðinn of seinn í árlegu kviðarholsspegluna mína. Næstum því
eins og stólpípa en ekki alveg jafn kitlin.
Dejá vú? Hah, smá rewind sprell. Ohh, það er svo gaman að fokka í ykkur.
Farinn til að vera
18nóvember
ENEIIENIENTGIENEINEINEIEN
ég var búinn að gera glansandi fína færslu. en nú er hún horfin
Fundur og arðsemi. virðing og sómasamloka. eitthvað sem aldrei var né verður.
Dagur 16:
ég er í reykjavík. á fuglaheimili. ég kom hingað með flugi í gær í aftakaveðri og ég segi það og skrifa, shit þetta var eitt versta flug sem ég hef upplifað. mikið af ákyrrð og shit. shit. en ég hélt ró minni allan tíma og hló upp í opið geðið á dauðanum sem þorði ekki annað en að láta undan. þegar komið var í borgina þá tók rútubílstjóri á móti okkur. hann var pínu pirri pú, ég held að hann hafi verið að drífa sig heim og setja í nýju uppblásnu dúkkuna sína. fokkans pervert rútubílstjóri. bam.
ég kynntist líka svala gaurnum á barnum sem er með það orð á sér að vera tvíkvæntur (hot round) og þrífráskilinn (makes no sense). Hann var að reyna að selja mér gasgrímur og litla síma. síma á engu tungumáli en hins vegar með tungulokk. Djöfullins lókur.
jæja tíminn búinn og ég get ekki bloggað um ekki neitt
Þið smitberar stelsýki, gyllinægðar og vansældar ekki vera með neitt bögg. ok plís
Vá. ég hélt eitt stundarkorn að ég væri líka búinn að glata þessari dullfærlsu. giiiiiiiiiirrrrrrr
ég er farinn að dissa innflytjendur og láta stinga mig í magann
Svartir gulur grænir glaðir. la la la. mér susama
10nóvember
..áliðið og við þurftum því að drífa okkur heim. How about that, sagði laxmaðurinn sem stóð mér á hægri hönd, ég ullaði á hann og gekk mína leið. Hann elti mig en ég snéri hann niður og spurði hann erinda. Þá vildi laxmaðurinn bara segja mér að hann væri með kartnögl og að ég væri með annögl og við værum sálufélagar.
Dagur 15:
Ég svaf í dag og hafði það gott. Þó svo að bakið hafi verið mér fjötur um fót undanfarna daga lét ég það ekki aftra mér á þessum degi.file.jpeg. Ég held barasta að ég sé að ná bata./Error/. Eða hvað.
Fór líka í nudd um daginn og það var svo þægilegt. En slakaði ég of mikið á og slefaði óvart á gólfið. Þegar ég áttaði mig á því, kipptist ég allur til. Má segja að ég hafi hrokkið í kút. Nuddarakonan eitthvað: “er ekki allt í lagi?” ég bra eitthvað “eee, jú” hún bra eitthvað “ok” og hélt svo áfram að nudda. Reyndin er reyndar sú að ég fór reyndar í tvígang í nudd. Í seinna skiptið leið mér eins og pítsudeigi þar sem nuddarinn rembdist við að fletja mig út. Það tókst ekki hjá henni en vá hvað það var ekki þægilegt (óþægilegt).
Inná ímynduðum fótboltavelli í ímynduðu landi í óímynduðum hálfleik
...en nú verðum við allir að sýna okkar besta. Koma svo! Ég veit þeir eru að salta okkur, en á svona tímum verðum við að standa þétt saman. OKEI! OG eins og sagt er: “Það er ekkert I í lið!” ?
Þetta er dæmi um slæma hvatningarræðu. Ég ætla samt ekki að messa of mikið um hvatningarræður því það rímar svo skuggalega við kosningaræður sem eru geipilega gleðitemprandi. Oj oj oj oj ohio.
Annars er ég að verða hæfilega góður í innanhúsrími.
En mótívatíon er eitthvað sem allir þurfa á að halda, rétt eins og hamingja.
Hamingja kemur ekki að sjálfu sér. Við erum jú bara dýrategund á lítilli plánetu. Við þurfum að átta okkur betur á því hvað gerir okkur að menneskjum, hvað ákvarðar okkur. Og hérna er það, uppskrift að hamingju.
Tveir bollar af þolinmæði
Hjartafylli af kærleik
Tvær handfylli af örlæti
Dass af skít (fyrir shitfetish mannverur)
Höfuðfylli af skilning
Slatti af hlátri
Tylft af hárboltum (ef fólk er mikið fyrir ketti)
Blandið vel saman með góðvild og trú
Hellið síðan yfir þetta heilli mannævi
Hee hee, ekkert af þessum ingredíensum existar út í búð. En ok, kommon.
Ég er samt hamingjusamur inn við beinið. Held ég. Minnir mig.
03nóvember
Konráð! Koddu hingað aðeins...sæll vinur, ég þarf að segja þér svolítið.
Já pabbi. Hvað er það gamli?
Ég var að eignast nýja kærustu.
Okei, flott er, alltaf sami playerinn. Og hvað heitir hún?
Magnús.
Dagur 14:
Voðaverki afstýrt
Matt my man var að ferðast vegna nýjustu myndar sinnar, The Anorexic Homo and The Small Giraffe, og á ferðalaginu hitti hann tvo “útlendinga” eins og hann kallaði þá. Þeir stóðu fyrir framan hann í röð á flugvellinum en þar rak Matt svo augun í lítill lista sem stóð uppúr rassvasanum á ljósbláu Wrangler gallabuxunum hjá öðrum þeirra. Svo fór hann eitthvað að fylgjast með því hvaða tungumál þeir töluðu og það var reyndar enska svo hann skildi þá. Hér er saga hans Matt´s. Þþþþþþþþþþ. Úpps.
Check-listinn hjá öðrum útlendingnum, eða hryðjuverkamanninum. Veit samt ekki hvað hann var að gera með þetta. Friggin retard.
Tickets: Checked
Clothing: Checked
Kebab: Checked
Passport: Checked
Weapons: Shield and a spencer(atgeir), Checked
Target: Washington DC
Say goodbye to my wifes: Checked
Mission in life: Please my god and be healthy when I get older.
The point of all this: ?
Og nú samtalið á milli þessara tveggja hryðjuverkamanna
Jasser: Hmm, Achmed, why are we doing this?
Achmed: Uuu...don´t know. For our religon?
Jasser: Fuck! What? really. I thought we were doing this for money.
Achmed: No I don´t think so.
Jasser: Well ok. I don´t wanna do it.
Achmed: Mkey, me neither. Let´s go to Burger King, i´m hungry. But not that hungry hungry, I just want a burger.
Svo fóru þeir og Matthew var illa brugðið. Ííííííi, öskraði hann í símtólið. Skrattakollurinn. En hann vill meina að þetta hafi verið honum að þakka því hann angaði af hamborgaralykt eins og svo oft áður. Oohhh, vá hann er alveg magnaður.
Þetta var nú átakanlegt dæmi fyrir Matt, úff.
Þetta er samt ekki spennandi saga, úff.
Annars var ég líka að spurja kallinn nær hann kæmi næst og hann var að tala um að koma í vormánuðunum, eða svona í kringum góu.
Djís þarf ég virkilega að ítreka allt sem að ég segi eða geri?
Bitri Björn
30október
Dagur 13:
Dagur þrettán er síðastur í rullunni margfrægu: 7-9-13. Vonandi verð ég stunginn í nótt. Ég meina, ekki stunginn. Ohh, óheppnin strax farin að elta mig.
Það á ekki að taka nammi frá börnum = börn eiga ekki að borða nammi.
Laugardagur = nammidagur
Feit börn = börn sem borða mikið af nammi á öllum dögum
Það á að taka nammi af feitum börnum = réttlæti og vaktavinna
Blettur á þjóðfélaginu = 10 ára reykjavíkur barn + 35 kg
Og þó..
Önnur málefni sitja á hakanum meðan við veltum okkur uppúr kaloríum. Hvað með, til að mynda andstæðurnar. Já, hvað með þær.
Andstæður eru einfaldar og daglegt brauð hjá flestum. Talandi um brauð..augnablik ég tek það fyrir hérna á eftir. Aftur að andstæðunum.
Gleði
Æpandi orion gleði á hverju götuhorni. Börn kætast yfir regnbogum og hýru fólki. Fullorðir hlæja. Pör faðmast og skála. Sólin brýst út úr bleiku dúnmjúku skýjahafinu. Nóg af mat og allir hamingjusamir, ekki síst þeir sem eiga bágt.
Ógleði
Háreyðingarkrem í völtum brúsa. Harðstjóri bæjarfélagsins reynir að kyssa alla sem á vegi hans verða. Hann er með stóra og ófallega frunsu. Maður með mikið hár reynir að komast undan, sér háreyðingarbrúsan. En hann veltur um koll áður en maðurinn með mikla hárið nær til hans. Harðstjórinn kyssir manninn í bak og fyrir.
Eins og sést á þessu ljóslifandi dæmi þá eru andstæður eitthvað sem fólk verður að díla við. Það er ekki hægt að láta þetta fram hjá sér fara. Því legg ég til að andstæðingar mínir leggi árar í bát og fari að sinna fjölgun á Mcfeitumkaloríubörnum. (ha ha. obb, andstæða)
Talandi um brauðið
Þá hefur mig sjaldan dreymt jafn merkilegan og í senn tilgangslausan draum og í nótt. Ég sat við matarborð (stórt fínt matarborð, í nokk dimmu herbergi. ekki heima hjá mér) og var að borða brauð. Svo setti ég ost á það og fannst það svooo gott að ég ákvað að fá mér meira. Ég var líka brosandi allan tímann.
Svo kom stúlka og sagði mér að ég væri andfúll, skammaði mig og sagði mér jafnframt að passa uppá þetta.
Shit, ég papercuttaði mig á Íslandsklukkunni.
Á litla fingri.
Á neðstu liðamótunum.
Á það er vont.
Á rni.
25október
Ég er kominn með geigvænlegan höfuðverk af öllu botoxinu sem ég var að sprauta í ennið á mér áðan. BOTOX höfuðverkur, er eitthvað verra?
Jú mér dettur eitt í hug. Að vera violeitiaður (nauðgað) uppá sviði með 300 geitunga í kringum sig, hunang í hálsinum, og í skítugri skyrtu sem er ekki í stíl við ljósu buxurnar.
Steiktur fiskur í raspi, er eitthvað betra?
Já mér dettur eitt í hug. Hrásalatið frá Kjarnafæði.
Dagur 12:
Í eftirfarandi bloggi fara þrjár reynslusögur sem hentu í dag. Kannski ekki spennandi.
Hver vill hlusta á sjúkrasögur? (sagt með tón sem ung kona með nammiskál segir við börn á leikskóla)
Það er byrjað að grafa einn ganginn enn í tánni minni. Í þetta skiptið er það baugfingurstáni á hægri fæti (númer 4, sé stuðst við SI-kerfið og talið frá Stórutá að þeirri Litlu). Loksins einhver nýjung í þetta. Það er alltaf stóra táin sem fær að kenna á sýkingum.
Respect
Var að glugga í smáblaðið/fylgjuna með Fréttablaðinu/sjónvarpsdagskrána Birtu (Birta) áðan og las þar skemmtilega grein um tónlistarmanninn Togga. Snilldar diskur sem hann var að gefa út í síðasta mánuði og því ákvað ég að glugga aðeins á þetta. Svo fletti ég í gegnum blaðið og rak augun í annað.
Fyrirsögn: Láttu fólk bera virðingu fyrir þér. Meðfylgjandi mynd er af svo af konu með uglu. KONU MEÐ UGLU! Kommon, hver ber virðingu fyrir konum. Og hvað þá með uglu á hendinni. Skrítin mynd með grein sem segir sex.
Sund
Ég fór í sund áðan, á æfingu. Þegar ég er að labba inn í klefann mæti ég manni. Ok. Svo geri ég mig kláran fyrir sundferðina, skelli mér í sturtu. Þegar ég er búinn að vera smá stund undir bununni þá kemur maðurinn sem ég mætti áðan í búningsklefanum, inn í sturtuklefann og ég hugsa þá: "hmm...? mætti ég honum ekki áðan" og það var þá sem ég fattaði af hverju ég sá hann aftur. Því á eftir honum kom þessi þrusuógeðslega ramma skítalykt, alveg vond og mettaði allt sem fyrir varð með kúkalykt. Ef ég vissi hvernig lyktin af þriggja vikna gamalli örbylgjuhitaðri skötusíld væri, þá mundi ég líklega bera þessar tvær lyktir saman. DORITOS MOMENT. Svo fór ég í sund.
Vá langdregið.
Shit, jæja. Næsta blogg verður í beinni útsendingu.
Og til að svara spuringunni sem þið spurjið kannski að, þá: nei ég veit ekki hvernig ég fer að því.
Þið sem eruð í áhorfendastúkunni í huga mínum. Endilega fylgist áfram með. Það er frítt. Bam!
18október
Börn eru eins og laukur, þú getur skorið þau en munt líklega gráta.
Dagur 11:
Smurður
Pappírspési var gómaður glóðvolgur með fimmtán insúlín sprautur í vasanum á “buxunum” sínum. Hann á engar buxur.
Situation
Vandræðalegar þagnir er eitthvað sem allir hafa lent í. Hér er ég með frábærar lausnir við þeim vanda. En byrjum á því að ímynda okkur vandræðalegt augnablik. Ég man eftir einu í sumar (man reyndar eftir frekar mörgum) og hér er það.
Ég stóð á sundlaugarbakknum. Svo kemur maður upp að mér með smeðjulegt hálfgeðveikt bros. Hann talaði með pervertískum tón og stóð alveg alltof nálægt mér. Svo ég sagði “armslength away mister!” nei reyndar þorði ég það ekki, hugsaði bara með mér. Hann sagðist vera nýkominn frá Færeyjum þar sem hann var að vinna fyrir gömul hjón. Og já hann er smiður. Hann dvaldist í Færeyjum einmitt hjá gömlu hjónunum í þrjár vikur og á meðan dvölinni stóð veiktist gamli maðurinn og var fluttur til Kaupmannahafnar. Þannig að hann var einn í húsinu í næstum tvær vikur. “Oookei (crepy man)” sagði ég þá. “Jájá.” sagði hann og svo kom vandræðaleg þögn þar sem við stóðum báðir á sundlaugarbakkanum.
Í svona aðstæðum er hægt að grípa um ennið á sér eins og Harry Potter og stynja hátt og tauta “ohh, Voldermort.” Ef viðmælandinn fer ekki í burtu þá þarftu að sýna smá spuna (á fræðimáli: improvisera).
Annað sem hægt væri að gera er bara að mmm-a, en það felur í sér að þú segir: “mmm” í hvert sinn sem viðmælandinn segir eitthvað og svo ef/þegar þögnin kemur þá heldur maður bara áfram: “mmmm mm.” Þetta ætti að öllum líkindum að verka fráhrindandi og manneskjan mun því kveðja og halda sína leið.
Svo er náttúrulega alltaf þetta klassíska sem snýst um að þú flýrð í burtu.
- Spurja hvað klukkan sé og ef viðmælandinn veit það og segir t.d. ‘hún er að verða 3’ þá segiru ‘neihh’ og hleypur bara í burtu.
- Önnur klassík er ‘Þuklið’ þar sem þú þuklar á sjálfum þér og setur síðan upp skelfingarsvip og skokkar í burtu.
- Síðasta klassíkin er ‘Bend á Celeb’, þá bendiru eitthvað og segir: “Er þetta ekki Seagal???”, viðmælandinni mun þá pottþétt stökkva til og leita að Seagalnum. Á meðan tekur þú til fótanna og forðar þér.
Lip trimmer og lips trimmers. eintala og fleirtala
People
People. Það eru tveir útlendingar búnir að skrifa nafn sitt í gestabók. Ég þekki þá samt ekki, hvernig væri ef sem flestir sem koma hingað myndu skilja eftir sig eitthvað sem maður getur glaðst yfir. Eins og komment. Útlendingarnir gerðu það og bottarnir. Þið, gott fólk, getið það líka. Ég skal vera kurteis og svara öllum (flestum, allnokkrum, bara nokkrum, sumum, fáum, útvöldum, engum) til baka. Jess.
Ég er samt sáttur með þau komment sem ég hef fengið hingað til.
Grandmaster Poolboy
Es. nýjar frábærar myndir. Myndir af mér með fallega og fræga fólkinu. Tékkitout.