15september

Töfrabjarmi Reykjavíkurborgar

Frá því að ég kom suður hef ég orðið, í það allra minnsta, 6 ógnarstórum geitungum að bana. oftast hef ég myrt þá með hreinsivökva, þar sem ég spreyja svona létt yfir þá leysigeisla eða sambærilegum skít, og fylgist svo með þeim engjast um með baneitrað broddinn stingandi í allar áttir. reyndar hefur það líka hent að ég hitti þá ekki í fyrstu atrennu og þá er það ég sem engist um, hrópa fúkyrðum á þá og æði um íbúðina með eldhúsrúllu í annarri hendinni og úðabrúsa í hinni. Hingað til hafa tveir geitungar fallið á klósettinu, þar sem þeir liggja enn í gluggasyllunni. Það fær hinar flugurnar til að hugsa sig, í það allra minnsta, tvisvar um áður en þær voga sér inn. Þrennt lést svo í eldhúsinu og einn andaðist í stofunni. Stoltastur er ég þó af því þegar mér tókst að kremja einn með splúnkunýrri námsbók, sem beyglaðist að vísu við verknaðinn. sá geitungur var á stærð við þumal og veitti ég honum ekki náðarhöggið fyrr í þriðju tilraun. bölvaður.

þá er gaman að segja frá því að það lekur stíft úr sturtunni á heimilinu, sem og baðvaskinum. við höfum því brugðið á það ráð að setja plastbikar undir vaskinn til að safna saman gulleitu vatninu en sturtuhausinn leggjum við bara niður í baðkarið þegar enginn er að skola sig. já, stórgaman að segja frá þessu.

Gott og vel. aðrar upplífgandi fréttir eru þær að einu sinni eyðilagði ég á mér magann og seinna í vetur ætla sprenglærðir skurðlæknar að gera við hann. maginn er býsna lemstraður í dag, en vonandi verður hann skárri þegar yfir líkur. annars var ég aðeins að gúgla þetta áðan og wikipedia gaf mér þessar upplýsingar varðandi meiðslin mín: "These can be among the most frustrating and difficult hernias to treat.." savalat. Hérna er svo tjúbvideo af slíkri aðgerð með kósy lyftutónlist undir, til þess að kæfa niður velgjutilfinningar af öllum sortum. Skelfing sem ég hlakka til.

talandi um gubb og ælur, þá þótti mér nokkuð gott hjá subwaykeðjunni að halda upp á 15 ára afmæli sitt um síðustu helgi, með því að bjóða upp á báta á sama verði og þeir voru undir lok síðustu aldar. ég ákvað að gæða mér á einum, eftir vellukkað og æsilegt djamm, síðastliðið laugardagskvöld. sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þegar heim var komið ákvað litli gúbbinn að taka til þess bragðs að skila honum beinustu leið í klósettið með munninum. því það er nákvæmlega eins og maðurinn sagði: gott er að leggjast mettur til rekkju, enn betra svangur. touché. það sem sá maður hitti naglann beint á hóvuðið. hugsanlega búlemíusjúklingur þó, en hann var allavega með staðreyndirnar á hreinu. og sunnudagurinn sem leið, leið eiginlega bara furðuhratt. því ég fór ekki á fætur fyrr en um klukkan 22. ennþá sársvangur, þunnur og haugdrullugur.

ég ætla allavega að láta líða 7 daga og 7 nætur, áður en ég fæ mér vel örbylgjaðan kafbát aftur.

-Feitur
15. september 2009 klukkan 15:19
Árni Björn
2 athugasemdir
09september

Múnkur er kufllaus maður

í gær/dag/gærdag voru síðustu forvöð þess efnis að skrifa dagsetninguna 08.09.09 á skilaverkefni, heimadæmi eða eitthvað þess háttar. en í dag/nótt/morgun/núna er umdeilanlegri svalari dagsetning. skiptir svosum ekki máli. Að öðrum og brýnari málefnum. Þannig er mál með vaxtarverki, að um daginn lenti ég í miklum lífsraunum. Hugsanlega það svæsnasta og erfiðasta sem ég gengið í gegnum hingað til á minni fáránlega stuttu lífsleið, með vísun í alheiminn og stjörnuþokur skiljanlega. aftur á móti er ævin þó ansi löng, sé tekið mið af dægurflugu eða krókódíl sem deyr ungur. er það skrifað krókudíl? örugglega ekki. skiptir heldur ekki höfuðmáli. eða eins og frægt er orðið; kartafla, kartafla. Allavega, þá er ég að sjálfsögðu að tala um það þegar ég var úti að labba um daginn og sá gamla konu (sjötug? Sjetíu og fimm? Einhver?) með tvo nóatúns innkaupapoka, hrasa í stiganum sem lá upp að húsi hennar. Hún tautaði „sjitt" og leit illilega á mig. Endir. Þetta er búið að vera mér mikil byrði æ síðan. En núna, loksins tengdur internetinu á ný, og geitinni, er ég guðslifandi feginn að hafa tappað aðeins af. Jah, mikil ósköp. Hvað í ösköpunum eru samt mikil ósköp? hugsanlega mjög asnalegt nafn - ósk öp óskarsdóttir? eða já, Haffi haff kennske? maður sem ber nánast alla kvenlega fítusa, nema sköp. Hann er samt stuttklipptur held ég alveg örugglega. eitt er þó fullvíst. Nothing else matters nema haffi haff, já jeg veit, sad but true, en ég meina the memory remains. Þetta er nú einu sinni hero of the day og það getur líka bara verið one slíkur. Frantic gaur samt þegar skoðaður er unforgiven og gersamlega óþekktur ferill hans. en nú, wherever i may roam, hugsa ég ögn betur um sjálfhverfan tilganginn með fólkinu, börnunum og trjánum. og smátt og smátt fade to black. ætli battery sé að tæmast? Æj, já ég held það bara. Enter sandman og master of puppets.
09. september 2009 klukkan 04:51
Árni Björn
2 athugasemdir
05desember

það er ekki neinum sem líkar ekki við tvöfalda neitun

ég var að skoða tölvuna mína fyrir fáeinum dögum því hún var yfirfull af einhverjum óþverra vírus, og við þá yfirferð rak ég augun í gamalt word-skjal sem ég hafði vistað á sínum tíma. Og á sínum tíma sýndi ég ungri stúlku það sem sagði mér að setja þetta á bloggið mitt. sinn tími er kominn, og hér er innihald eftirfarandi skjals. megablast funny shitjit.

Árni Björn . says:
do you listen to !!!
Árni Björn . says:
!
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
yea do you ? :
Árni Björn . says:
but of course
Árni Björn . says:
myth takes
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
how cool
Árni Björn . says:
their new Cd
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
yeah
Árni Björn . says:
mighty fine
Árni Björn . says:
are you listening to it?
Árni Björn . says:
myth takes?
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
http://www.myspace.com/chkchkchk
Árni Björn . says:
yes? I know.
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
sjjj ive not known own damn person thats listens to them exept for me
Árni Björn . says:
sweet
Árni Björn . says:
they are good
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
i lovvvvvvvvve them
Árni Björn . says:
Jepp. they´re pretty awesome
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
jeyy hehehhehe so do u live in ice ?
Árni Björn . says:
jebb in Iceland, in a ice house
Árni Björn . says:
ice cold
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
cool , i was working in iceland for 4 month at Blesastadir its between fludir and selfoss
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
i just got home 3 weeks ago cauz i had to go to milano, Italy
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
where do u live?
Árni Björn . says:
ok
Árni Björn . says:
nice
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
where do u live?
Árni Björn . says:
i live in Akureyri
Árni Björn . says:
the Capitan of the north
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
heheh
Árni Björn . says:
the capital of the north, i mean
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
hey u should come to swe, im goin to watch chk chk chk on the 16th april or 22nd cant remember in malmö close to kopenhagen
Árni Björn . says:
ok sweet
Árni Björn . says:
but I can´t come
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
hehehhe ok
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
how old are you?
Árni Björn . says:
19
Árni Björn . says:
and you?
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
17
Árni Björn . says:
Ok, and do you live in sweden
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
yes
annasofia .^* Chk Chk Chk) !!! says:
in mölle its between malmö and gothenburg
Árni Björn . says:
ok
Árni Björn . says:
niiiice
Árni Björn . says:
but ayeaye, g0t 2 g0
Árni Björn . says:
ses på

þetta myndi vera fyrsta og eina samtal mitt við önnu soffíu frá svíþjóð. hvernig hún fékk msnið mitt er mér hulin ráðgáta enn þann dag í dag. og annað sem er mjög fyndið við þetta samtal er hvernig hún skilgreinir staði og borgir. Haha, æj. þetta er samt leiðinleg færsla, í hausunum á mér var hún mun skemmtilegri. annars hefði ég nú ekki lagt lykkju á leið mína hingað inn. ég hefði mun frekar lagt for-lykkju eða do-while lykkju, því ég er svo slunginn að forrita. { }

hehe p.s. að drekka bjór er eitthvað sem mörgum finnst gaman að gera, og er ég meðtalinn í þeim ágæta hópi ómenna, en nú þegar ég er í prófum þá er bjórdrykkja af skornum skammti, eins og gefur að skilja, og nema hvað þá lengist sá tími sem ég hef ekki drukkið mjöð með hverri mínútunni. En núna rétt í þessu þá fór ég að spekúlera aðeins í bjórdrykkju, og hvað það er sem gerir hana svona spennandi. líklega er það ekki bara að sitja með félögunum og drekka eitthvað. því það eru fáir geðheilir menn sem mæta í partý og segja sísvona: hey er laust pláss í ísskápnum? Ég er nebblega með rútu af pepsi sem mig langaði til kæla. og svo drekkur hann stíft pepsíið sitt á sirka einum og hálfum tíma. manni verður bara bumbult í maganum á því, eða svo segir sagan. núna er ég kominn að merg málsins en hann er sá að ég er búinn að steingleyma hvert ég ætlaði með þetta. sennilega var það að mönnum finnst skemmtilegra að vera heimskulegur í hóp heldur en einn með sjálfum sér. svona rétt eins og trivial pursuit.

05. desember 2008 klukkan 14:01
Árni Björn
7 athugasemdir
28október

Fyrirsögn er nauðsynleg

það er nú meira sem dagarnir, eða vikurnar, fljúga áfram. það eru til að mynda helvítis tveir og hálfur mánuður síðan að ég flutti suður. hvað er það? mér finnst eins og það hafi verið áðan, eða bara núna. svo fljótt finnst mér þetta hafa liðið. annars sá ég svarta manninn sem spurði mig um sígarettu um daginn, um daginn. það var í 10-11 verslun sem ég sá hann. og hann stóð við afgreiðsluborðið ásamt vinum sínum, og var að spjalla við piltinn á kassanum. Kassapilturinn rukkaði mig um smáaura og ég gekk út, en bíðum nú hæg. á útleiðinni þá heyri ég "heyj, má fá eina sígó?" WHAT, hugsa ég og sný mér hægt við. en mér til mikillar ánægju sé ég að hann er ekki að tala við mig heldur gæjann sem var á eftir mér. sá var álíka gáttaður og ég var forðum og sagðist heldur ekki eiga neina sígarettur. hann reykti ekki. hvað gengur fyrir þessum pilt? maður spyr ekki bara eitthvað lið um sígarettur, nema þá á djamminu, þar sem svona óuppbyggileg skyndikynni fara jafnan fram, en ekki á miðjum degi í miðri viku. eða mér finnst þetta vera hálffáránlegt allavega. enda sagði kassapilturinn að svona gerði maður ekki. úff. eftir þetta atvik þá hljóp ég heim, hljóðandi.

[hérna stóð eitthvað um svefnvenjur og svoleiðis, og hvernig ég væri alltaf að sofa yfir mig og mæta of seint í skólann. en það var hundleiðinlegt. eftirfarandi dæmi sannar það:

...og trtrttrtrrtr rtrrtr tkktkktkktktktktktkktktk, barrrhkrrrrdss er hljóðið sem ég sofna stundum við á nóttunni.]

Leg er sennilega eitt af þeim líffræðilegu orðum sem kemur líklega hvað oftast fyrir í íslenskri tungu. það kemur t.d. fram fjórum sinnum í seinustu málsgrein.


ármbni


28. október 2008 klukkan 18:49
Árni Björn
2 athugasemdir
15október

Fritzl, jósef Fritzl

Já, blessaður Hans, gakktu í bæinn. konan mín er að elda snitzel og dóttir mín og börnin "slash" barnabörnin eru niðrí kjallara. heh, flottur.

of snemmt kannski?

En keió. Hvað þýðir það á læknamáli, þegar maður pissar gulgrænleitu þvagi. svona leppinlituðu, fyrir þá sem vita hvernig leppin drykkurinn bragðast og lítur út. ætli það sé útaf því að ég gleypti hina svokölluðu sportþrennu í morgunsárið.
sem er reyndar ekki sportþrenna frekar en kertavax, því þetta eru fjórar pillur en ekki þrjár eins og umbúðirnar og auglýsingarnar gefa til kynna. reyndar man ég ekki eftir auglýsingunni, en mig minnir að hún minni mig á orkustangarauglýsingarnar frá freyju.
hreysti og kraftur, eða eitthvað svoleiðis. þar sem arnar grant þjarkar kjötskrokk í rusl og hleypur svo á ströndinni ásamt ívari guðmunds á bylgjunni.
núna er samt lag í spilun á bylgjunni, veit ekki hvort þið kannist við það, en það heitir allavega eitthvað og er nýja lagið með Herberti Guðmunds. ég sá hann nú í sundi í gær, og ég gæti vel trúað því að hann myndi skora negatívt út úr greindarprófi. þvílíkur power-retarður. er hann steig ofan í sama pott og ég og bróðir minn vorum að "chilllllla feiiiiitan drenguuuur", sá hann þar fyrir mann sem hann kannaðist greinilega eitthvað við og nánast stökk í fangið á honum. bókstaflega. hann uppvíraðist allur og hóf mál sitt, þar sem "þúveist" og "skilurumig" voru þriðja og fjórða hvert orð, á milli þess sem hann ræddi um hvernig hann væri allur búinn og slitinn í olnboganum eftir að hafa þurft að bera alfræðiorðabækur á milli húsa seinustu misseri, en ekkert hafi gengið að selja þær en fólk hafi sagt við hann skiluru, að þúst, ef hann væri þúst með diskinn sinn skiluru mig, þá myndi það þúst kaupa hann. svo hann ákvað að fara selja diskinn sinn meðfram því að selja alfræðiorðabækur. tvöogfimm fyrir diskinn er ekkert hliðiná 30 kúlum. ÞÚSTSKILURU!! fatlaður andlega þessi maður. og til toppa tilveru mannsins sem hann var að ræða við, þá ákvað hann að segja honum frá því að um áramótin væri hann líklega að fá vinnu hjá fasteignasölu, þegar markaðurinn væri aðeins kominn í jafnvægi. og sagði framkvæmdastjóri fasteignasölunnar að hann myndi þokkalega setja heilsíðuauglýsingu í moggann ef hann myndi ganga til liðs við þá. "Herbert er byrjaður hjá okkur!!" og mynd af kjéppz. þá myndi sko efnahagurinn og þjóðfélagði í heild sinni loksins rísa á afturfæturna á ný, eftir hópanalríðingu seðlabankastjóra og fleiri grandmasters.
alltaf gott að hafa fínt álit á sjálfum sér. eða svo sagði allavega maður sem var í pottinum með mér og jóni, rétt eftir að hebbi hafði komið sér uppúr. svona var þetta. þetta fína líf, sem var að færa mér tvo miða á landsleikinn í kvöld. vann þá í getraun. karma að kikka aðeins inn. en svo kikkaði það aftur út núna rétt áðan, þegar ég var að klippa á mér tásluneglurnar. helduru að ég hafi ekki klippti svona bilað ofan í kjötið og svitnaði og stundi fyrir vikið. ég er hugsa um að fá mömmu til að laga þetta á morgun þegar hún kemur í heimsókn. ég hef sagt það áður og ég segi það enn; steiktur fiskur er mesta góðgæti sem nokkur getur gefið mér og mínum. á eftir graflaxi og herpes.

klisjukennd þessi færsla, hraun yfir peopleh sem má kannski ekki við því. hver má svosum við því? fólk sem hefur geyspað golunni má alveg við því, þannig séð. ekkert sem dregur það niður í daglegu lífi per se. en slíkt væri náttúrulega bara óviðeigandi og óþarfi í sjálfu sér. að geyspa golunni samt? hver segir svoleiðis? fólk sem hefur geyspað henni? haha! djöfullinn nei maður. ekki það fólk frekar en ég, eða u

PS. ég set "í" á milli þessarar skammstöfunnar
15. október 2008 klukkan 14:26
Árni Björn
3 athugasemdir
08október

Jah, svart er það

Hvar er ég? hugsaði ég með mér. Svo kalt og týndur. Ég leit niður í skítugan poll, sem var við fætur mínar. Ég velti fyrir mér hvort hægt væri að drekka þetta óhreina vatn. Svo þyrstur og þreyttur. Er ek leit upp úr pollinum og sá græn augu kambeðlunnar, sá ég spegilmynd mína glampa svo skýrt í snjóhvítum augnhimnum hennar. Mér krossbrá og þreifaði rólega eftir baki eðlunnar og strauk það, ofurlétt. Við horfðumst í augu í drykklanga stund, uns við áttuðum okkur á því að við værum ein. Hún greip þá varfærnislega í hendur mínar, sveipaði þeim um sig og við föðmuðumst innilega. Við grétum og grétum. Ekki þá. Ekki á þessu augnabliki. Heldur síðar. Í algjéru einrúmi, hvort um sig.


Annars lenti í einu skrítnara atviki í gær þegar ég var að ganga heim á leið úr skólanum og nálgaðist óðfluga hverfið mitt. þá mætir mér ungur maður, stöðvar mig og bendir mér á að nú skuli ég taka heyrnatólin úr eyrunum og hætta að hlusta á ipodóðuna mína. ég geri svo og þá spyr hann, með útlenskum hreim: "má ég fá eina sígó hjá þér?" ég svona, bíddu nú hægur, hvað er á seyði og svara honum: "hah? neei, ég hérna.. reyki ekki" "u, ókei dem" svarar maðurinn, sem var af afrísku bergi brotin, íklæddur dökkbláa dúnúlpu og í útvíðum gallabuxum. og fannst alveg sjálfsagt að spurja random akureyring á heimleið, um sígarettur og það um háfokkinbjartan dag. Helvítis kreppa.

08. október 2008 klukkan 14:00
Árni Björn
4 athugasemdir
30september

Badbdboy

Jaeæja. Ég er fluttur til reykjavíkur og svei mér þá, ég held að ég búi í einu hættulegasta hverfi veraldar þar sem sírenur dynja á hljóðhimnum mínum á u.þ.b. tveggja tíma fresti. Og mig langar aðeins til að hrópa húrra fyrir ástandinu í þessu hverfinu mínu og deila því jafnvel í nokkrum versum. Líkt og guðspjall eða ljóð.

Fyrsta vers. Í húsinu við hliðin á búa nokkrir pólverjar, meðal annars einn sem var stunginn inn í íbúðinni sinni fyrir tveimur vikur.

Annað vers. í bakgarði þessa sama húss er kofi, þar sem hýrast hátt í tólf eða þrettán mismunandi manneskjur. Sennilega einnig austur-evrópubúar.

Hið þriðja. Gatan fyrir ofan hefur svo uppá að bjóða eitthvað skuggalegasta hús seinni ára, með rauðum seríum útum allt, mynd af dauðum ísbirni í glugganum, skilti sem á stendur ”bleyði” og á kvöldin safnast stundum saman fullt af skítugu hyski undir partýtjaldi og hefur það notalegt í kvöldmollunni. Gæti verið að þetta sé hóruhús reykjavíkurborgar, eða einhvers konar dópbæli? Ég veit það ekki.

Fjórða og jafnframt síðasta vers að sinni. í götunni fyrir ofan þá götu var svo einhver maður murkaður ekki fyrir allslöngu, við ljótasta bar ársins, þar sem dagdrykkjuhrútarnir chilla. Sem er hið besta mál, vissulega.

 

Þetta voru hin fjögur fjörugu atriði til lífga upp á daginn hjá ykkur sem lesið þetta. En meira bara til að gera mér og bjarna, eykeyey sambýlingnum, lífið leitt.

 

Innskot (ala Erla litla): núna heyrði ég einmitt í sírenum

 

Ahh ja, skólinn líka drengur. Skólinn er fokkans frábær. Núna á ég einmitt að vera að gera eðlisfræðitilraunarskýrslu sem ég átti að skila seinasta fimmtudag. Eða fyrir fimm dögum. Talandi um fimm daga og skólalífið, þá eru svona íþróttadagar hr í gangi þessa vikuna. Ég tók þátt í sjósundi í gær og tapaði bara fyrir einum og lenti þar af leiðandi í fjárans öðru sæti. Reynsla mín af sjósundi er takmörkuð og ég ætla mér ekki að bæta við þá reynslu, hehe. Þetta var alveg nóg held ég, heh. Atlanthafið er alls ekki staðurinn til að synda í að haustlagi. Sveiattan, ég hélt að ég myndi tapa lífinu. Ef ég ætti að lýsa þessu í hundrað orðum, þá væri það einhvern veginn svona: Er ég stóð þarna í stinningskalda á níðþröngri fölblárri speedó sundskýlu, við hliðiná allnokkrum háskólanemum, og beið eftir að heypt væri úr þokulúðrinum, varð mér litið út á rúmsjóinn í átt að appelsínugulri bauju og ég man að ég hugsaði með mér: ”hvað í andskotanum er ég að gera hérna?” ”[lít niður]tærnar á mér eru geðveikt skítugar” ”ég er feitur í þessum fötum” ”ætli þetta sé það síðasta sem ég tek mér fyrir hendur?” Þegar ég kom loks upp úr, ekkert of mörgum mínútum síðar, þá hugsaði ég hins vegar einungis þetta: ”vá shijtt, typpið á mér hefur aldrei verið svona lítið”

Þannig að mæli ekki með þessu. Ég mæli heldur ekki með limamælingu að loknu svona sundi. Allavega ekki ef þetta er opinber mæling. Óopinber mæling gæti samt verið fróðleg. Spurning hvort maður ætti að gera það, fá fullt af gaurum til að mæla tittling fyrir og eftir sjósund. Allt nafnlaust vitaskuld. Jeg ætla nú samt ekki að taka að mér þetta verðuga verkefni. Því það er pínu gay og ég er homophobicanian, þannig að einhver annar verður að taka upp kyndilinn þar sem ég set hann núna niður að sinni.

 

30. september 2008 klukkan 18:42
Árni Björn
6 athugasemdir
13ágúst

Illa spældur

Núna rétt í þessu var ég að skoða fréttir, klám og sitthvað fleira sem internetið hefur upp á að bjóða. og heh, ég rak augun í einhverja frétt sem fjallaði um eitthvað tilboð sem barst í einhvern suðurstrandar vegkafla, sem liggur einhvers staðar á íslandi. Anyhey, ég fór að hlægja þegar ég las eftirfarandi kafla. hehemm:

"KHN ehffrá Ísafirði átti lægsta boð í Suðurstrandarvegkaflann á milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar, en tilboðið hljóðaði upp á 697 milljónir króna. Þetta kemur fram í fret Vegagerðarinnar..."

Fret Vegagerðarinnar. LOL. annars þá skil ég ekki alveg um hvað er verið að tala um, svona í heildina litið, í þessari frétt. Eitthvað um prósentur og því um líkt. Lesa frétt.

annars þá er ég að fara suður á boginn næstkomandi laugardag, rakaður undir höndunum og á bringunni, þ.e.a.s. í kringum geirvörturnar. Svo á ég líka eftir að setja inn ferðablogg um interrailið okkar hákons. ég er kominn með byrjun og endi, sem er samanlagt um 5 blaðsíður í word. vantar núna bara meginmálið. það kemur seinna, líkt og allt annað í þessari blessaðri veröld.

orðið hyperlink er frekar fáránlegt, þegar pælt er akademískri og óeiginlegri merkingu þess.


13. ágúst 2008 klukkan 01:24
Árni Björn
5 athugasemdir
13júlí

Íslam er frábær náungi.

áðan fór ég á salernið og hahahaha, ég eins og svo margir aðrir þá kúkaði ég, en var svo lengi að pissa að ég gleymdi því að ek habbði sett'ann, gleymdi að skeina mér. rofl. ég stóð upp í stríðinu og gleymdi að verka mér, og það var ekki fyrr en ég hafði staðið upp með allt niðrum mig og byrjað að þvo mér um hendurnar þegar ég áttaði mig á því að ég hafði kúkað. þess vegna settist ég niður aptur og skeinaði mér. ég ærðist úr hlátri. þetta er ísland í dag, gott fólk.

núna er ég að kúka á mig. I shit you not
13. júlí 2008 klukkan 07:27
Árni Björn
6 athugasemdir
29júní

Ég ætla að verða eins og Britney Spears

ég ætl' verð' eins og hún, ætl' verð' eins og hún! þessi færsla er skrifuð á þýskt lyklaborð í landinu Austurríki, í íbúðinni hjá elskulega parinu Eyrúnu og Lalla.


Tussubloggans ferðablogg númer eitt, á interraili um euorupe.

Hæ hæ og halló dagbók. Við erum á lífi, báðir tveir. Í dag er dagur númer átta á interrailinu okkar og eins og er þá erum vér staddir í vínarborg. og á morgun er úrslitaleikurinn í evrópumeistaramótinu. við ætlum okkur því að ganga niðra-á torg og fagna sigri spánverja, 1-0. Annars þá er ferðin búin að ganga glimrandi vel og allir eru heilsuhraustir og fínir. við erum ekkert rosalega brúnir samt. og já, ég fékk líka sár á tærnar, eða öllu heldur iljarnar, fyrir þremur dögum, á sama stað og konan útá rhodos klippti gat, þegar ég var í fót- andlits- og handsnyrtingu, ógó ógeðslega vont. en það er sem betur fer ekki að gróa. svo ég er með stór sár á löppunum. set inn myndir af því eftir 13 daga.

Ferðin okkar byrjaði á flugvellinum á akureyri, með hangikjeti og egils orku. svo sofnuðum við og vöknuðum fresh í dk. það var gaman í danmörku, þann eina dag sem við dvöldum þar. M.a. þá fórum við í tivoli, ég for den förste gang, en hákon í kannski áttunda eða tíunda skiptið. þar voru líka tónleikar með afleitri, en rosa vinsælli hljómsveit. þessa nótt gistum við hjá matta litla, litla frænda hans stóra hákons. Daginn eftir misstum við svo næstum því af lestinni til Hamborgar, en náðum að fá lestarkonuna til að opna lestina rétt áður en hún lagði í hann. um borð í lestinni var fleira fólk á leiðinni til hamborgar líkt og við. við töluðum lítið við það fólk, en báðum þó einn mann (hann var kannski á bilinu 46-54, nema hann sé óheppinn með útlit, eða heppin) um að taka mynd af okkur. þetta var reyndar ekki um borð í lestinni, heldur í ferjunni sem við tókum frá danmörku til þýskalands. ferlega var hún stór, boy ég skal segja ykkur það seinna á msn, eða á kaffihús. hún var svo fuckin stór. vá. í alvöru. BIIIG.

Svo þegar við komum loks til hamborgar, og æltuðum að fá okkur hamborgara (sem er svo evrópu-nördalegt, við vitum það mætavel) fundum við hvergi hótel né hostel né nokkurt annað gistipláss. svo við röltum á milli staða, lögðumst á fjóra fætur og báðum um gistingu. þetta stunt kostaði okkur næstum því tvö beinbrot og fimm tennur, því fólkið hélt að við værum glæpamenn eða mormónar eða leiðinlegir ferðamenn í leit að gistingu. við héldum því áfram för okkur og duttum inná eitt rautt fancy pants hótel og spurðumst fyrir um svefnpláss. nein, sagði konan og hristi hárið og brosti. tók því næst upp símann og hringdi á eitthvað allt annað hótel. viti menn, þar var eitt laust herbergi sem við þáðum glaðir og graðir. Já á meðan ég man: alveg rétt, ástæðan fyrir því að öll hótel og hostel þar í bæ voru yfirbókuð var einföld og óskiljanleg. Það voru nebblegast hinir árlegu Harley Davidson dagar í gangi í Hamborg þessa helgi, og því voru yfir 25 þúsund mótorhjól og mótorhjólakappar að flexa á bakkanum á hverju einasta hóteli. En eftir að við höfðum tékkað okkur inn á hótelið, þá sáum við leik á borði og á ákváðum að kíkja ögn út, tjékka hvaða sjitt væri eiginlega að fokkin gjérast. okkur til mikillar skelfingar sáum við nánast einungis fólk í iron maiden bolum, nema það stóð ekki iron maiden á bolunum. bara hauskúpur, reykur og blóð. nú voru góð ráð dýr, og hákon datt það snjallræði í hug að yfirbuga tvo gæja og klæðast fötunum þeirra, leiða random kjéllingar og bera olíu á hjól. sem við og gerðum. með þessu athæfi tókst okkur að lifa af þær hættur og frestingar sem hamburg hafði uppá að bjóða á þessu fyrsta kvöldi okkar í mið evrópu. þó vorum við pínu pínó skelkaðir einu sinni, þegar við ætluðum að nærast. en það var þá sem við hittum andlitslausa barþjóninn í fyrsta skiptið. sá var með þykkustu gleraugun í bransanum, sem og feitasta hárið. Hann var fáranlega magur, líklega að slavnesku bergi brotinn, skítugur með eindæmum og boginn í baki. og.... hann bar ei andlit. I shit you not. 
Andlitslausi barþjóninn varð þess valdandi að í staðinn fyrir að panta mat, því við misstum matarlystina við að sjá hann (kannski einfalt i, en ég er í austurríki svo það skiptir engu máli. svo er sumarið líka tíminn). Við pöntuðum því bjór frá honum og fengum hann í sóðalegum glösum. Glasið hans hákons var meira að segja með varalit. crepz og oj. þetta kvöld var samt þokkalega hresst og mikið sem það var hlegið. næstu kvöld voru afskaplega skemmtileg einnig og ég læt myndinar ekki tala sýnu máli að þessu sinni, þar sem þær koma ekki inn fyrr en eftir einhverja fleiri daga.

En núna er konkon minn sofnaður fyrir svo og svo klukkustund og því ætla ek að kveðja. Ég á líka enn eftir að skrifa um dvöl okkar í berlín og parguehehe og vín. En það kemur seinna. Þangað til næst, blessó.
29. júní 2008 klukkan 00:08
Árni Björn
2 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Árni Björn
  • Atvinna: vörður
  • Hjúskaparstaða: nei
  • Um mig: ég er ríflega 20 ára karlkyns lífvera. bý á Akureyri. brosmildur og ljós á hörund. ekki með gleraugu. dökkhærður. og eiginlega bara algjört rassgat.
  • Annað: nei held ekki

Auglýsing

Könnun

Opin buxnaklauf?

emmessen eða emmessís

arni88@hotmail.com endilega addið mér inná msn eða bara sendið mér tölvupóst, óþarfi að vera feimin(a) en samt ef þú ert í vafa þá skaltu sleppa því. Nema þú viljir vera partur af msn fólkinu mínu en á hinn bógin getur verið að þú sért í vafa vegna tilfinningalegrar klisju sem virðist hrjá marga á þínum aldri. Ef sú er ekki raunin er engin fyrirstaða fyrir því að þú bætir þessu netfangi inná msn hópinn þinn og gerir mig að msn-buddy. Hvað segiru þú? Og árni.

Msn er annars fín leið til að eiga rafræn samskipti í ört vaxandi tækniheimi nútímans þar sem miðað er því að tími sé dýrmætur og allt og ekkert þurfi að gerast, ekki strax, heldur í gær. Lífsviðhorf manna er búið að taka stakkaskiptum með tilkomu þessa rafrænu skilboðaskjóða og virðast engan endi ætla að taka. Hvað sem því líður er ég sjálfur orðin partur af þessari bakteríu sem stefnir að heimsyfirráðum (á fræðimáli: atlasus infernus). Sjálfur stefni ég líka á "AI" og því er msn-djöfullinn andstæðingur minn. En eins og segir í sögunni góðu: Keep your friends close but your enemies closer. Það er og sem ég ætla að gera. Plís ekki segja Harold Andrew Msn (sá sem fann upp msn og msn heitir eftir) frá þessu launráði mínu. Það er nefnilega leyndó.

Leit